Stuðningsfjölskyldur

Stuðningsfjölskyldur veita foreldrum barna stuðning við foreldrahlutverkið hvort sem það er innan eða utan heimilis. Hlutverk þeirra er m.a. að létta álagi af barni og fjölskyldu, veita foreldrum tækifæri til hvíldar, styrkja stuðningsnet barnanna og auka möguleika þeirra á félagslegri þátttöku.

Hvernig sæki ég um að fá stuðningsfjölskyldu?

Stuðningsfjölskyldur eru hluti af stuðningsþjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Fyrsta skrefið til að sækja um slíka þjónustu er að bóka símtal frá ráðgjafa. Gert er mat á heildarþörfum fjölskyldunnar áður en ákvörðun er tekin um að veita stuðning í formi stuðningsfjölskyldu. 

Teikning af tveimur krökkum sem sitja á gólfi og lesa.

Hvaða þjónusta er í boði?

Hjá stuðningsfjölskyldum fá börn tilbreytingu, hvatningu og stuðning auk þess sem þau fá tækifæri til þess að efla félagsleg tengsl sín og virkni. Barnið dvelur á heimili stuðningsfjölskyldunnar og tekur þátt í daglegu heimilislífi hennar. 

Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu getur að hámarki verið 15 sólarhringar á mánuði. Þegar mál barns er í vinnslu hjá Barnavernd Reykjavíkur getur dvöl hjá stuðningsfjölskyldu verið að hámarki 7 sólarhringar á mánuði.

Þjónustan er fyrir fjölskyldur fatlaðra barna sem eiga lögheimili í Reykjavík.