Jarðvegslosun

Móttaka jarðefna er í Bolaöldu

Opið er fyrir móttöku mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–11:50 / 12:30–17:00 og á föstudögum kl. 8:00–11:50 / 12:30– 16:00. Lokað er um helgar.

 

 

Hvaða efni má losa?

Eingöngu er heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni svo sem mold, möl og grjót. Einnig má losa steinsteypubrot sem búið er að klippa af öll útistandandi járn og hreinsa af öðrum efnum svo sem einangrun, pappa og klæðningu.

Ekki er heimilt að losa lífrænan úrgang eins og húsdýraskít og landbúnaðarhrat, eins og það er orðað í starfsleyfi.

 

 

Hafa samband

Bolaöldur hefur umsjón með jarðvegslosunarsvæðinu.