Íþróttir og útivist
Komdu út að leika! Hreyfing og útivist styðja við góða líkamlega og andlega heilsu. Í Reykjavík finnur þú fjölda útivistarsvæða sem bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega afþreyingu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er með eitthvað fyrir alla og svo eru auðvitað sundlaugarnar opnar allan ársins hring.
Skíðasvæðin
Innan borgarmarka Reykjavíkur eru þrjár skíðalyftur sem ætlaðar eru börnum og byrjendum í Ártúnsbrekku, Breiðholti og Grafarvogi. Lyfturnar eru opnar þegar aðstæður leyfa.
Stærri skíðasvæði eru í Bláfjöllum og Skálafelli.
Ylströndin Nauthólsvík
Ylströndin í Nauthólsvík, sem tekin var í notkun árið 2000, hefur sannarlega fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu sem laðar að jafnt innlenda sem erlenda gesti.
Í Nauthólsvík er að finna þjónustumiðstöð með búnings- og sturtuaðstöðu fyrir baðgesti auk veitingasölu og grillaðstöðu.
Sjósund
Sjósund nýtur vaxandi vinsælda og þykir það einstaklega gott fyrir áhugafólk um sjósund að nýta sér aðstöðu Ylstrandar allt árið.
Starfsfólk Ylstrandar reyna eftir fremsta megni að gefa sjósundfólki góð ráð en þó má sérstaklega taka fram að reyndir sjósundkappar eru bestir í að gefa góð ráð.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Dýra- og skemmtigarður staðsettur í Laugardalnum. Í garðinum eru haldin dýranámskeið fyrir börn og unglinga.
Á sumrin eru tækin opin en allt árið í kring er dagskrá þar sem hægt er að sjá þegar dýrunum er gefið að borða eða stundum jafnvel hægt að skella sér á hestbak.
Garðurinn er opinn alla daga.
Hitt húsið
Hitt Húsið er miðstöð ungs fólks. Ef þú ert á aldrinum 16-25 ára getur þú nýtt þér aðstöðuna til að syngja, dansa, dreyma, skapa, læra, spila, funda og nánast hvað sem þér dettur í hug!
Komdu og kynntu hugmyndina þína eða kíktu bara í kaffi og sjáðu hvað er í gangi.
Frístundagarðurinn við Gufunesbæ
Á túninu við Gufunesbæ er búið að gera skemmtilegt útivistarsvæði fyrir fjölskyldur og börn. Hægt er að panta grillskýli, blakvelli og leiktæki. Auk þess er á staðnum folfvöllur, rathlaupsbraut, leikkastali, ærslabelgur og Petanque völlur.
Hlaðan við Gufunesbæ
Hlaðan er fjölnota salur sem hentar vel fyrir ólíka viðburði s.s. fundi, námskeið, smærri ráðstefnur, starfsdaga, smiðjuvinnu og fleira.
Borgin nýtir Hlöðuna á fjölbreyttan hátt ásamt því að leigja rýmið út til einstaklinga og fyrirtækja til viðburðahalds.
Frisbígolf
Frisbígolf, eða folf, er einfaldur og skemmtilegur leikur sem hentar öllum aldurshópum.
Í Reykjavík eru níu frisbígolfvellir og aðgangur að þeim er ókeypis.
Það eina sem þarf er frisbídiskur og góða skapið!