Vatnsvernd

Markmiðið er að tryggja verndun grunnvatns vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins og stuðla þannig að hámarkshollustu og gæðum ómeðhöndlaðs neysluvatns á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar.

Almennt um vatnsverndarsvæðið

Höfuðborgarsvæðið er á jaðri mikils hrauna- og grágrýtisflæmis. Berggrunnurinn er allur mjög lekur og gleypir í sig nær alla úrkomu. Mestöll úrkoma sem fellur á höfuðborgarsvæðið rennur því með grunnvatnsstraumum til sjávar.

Meginvatnsverndarsvæðið teygir sig frá Bláfjöllum í norðvestur að þéttbýlismörkum svæðisins. Í suðvestri nær svæðið að landamörkum við Vatnsleysustrandarhrepp, í suðri að mörkum Grindavíkur en í austurátt að mörkum sveitarfélagsins Ölfuss

Vector mynd af tveim vöffluformum á bakgrunni.

Regluverk

Um vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins gildir samþykkt nr. 555/2015 en markmið samþykktarinnar er að tryggja verndun grunnvatns vatnsverndarsvæða höfuðborgarsvæðisins þannig að gæði neysluvatns á vatnstökustað uppfylli ávallt kröfur sem gerðar eru í gildandi löggjöf.

Þannig er stuðlað að hámarkshollustu og gæðum ómeðhöndlaðs neysluvatns á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar með því að koma í veg fyrir óæskileg áhrif af völdum athafna, starfsemi og umsvifa á vatnsverndarsvæðum vatnsbóla á svæðinu.

Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sameinast um samþykktina. Heilbrigðiseftirlitin þrjú á höfuðborgarsvæðinu mynda framkvæmdastjórn sem hefur umsjón með vatnsverndarsvæðinu.

Framkvæmdastjórn um vatnsvernd

Fundargerðir og ársskýrslur framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu.

 

Teikning af fjalli með snævi þaktan topp.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur

Fyrirspurnir eða ábendingar