Inniloft, raki og mygla
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur veitir ráðgjöf varðandi raka og myglu í húsnæði.
Rakavandamál í húsum
Geta stafað af leka eða röku lofti sem nær að þéttast, t.d. vegna ónægs viðhalds, byggingargalla eða vegna umgengni íbúa. Of mikill raki, á nánast hvaða yfirborði sem er innandyra, getur leitt til örveruvaxtar, s.s. myglu, sveppa- og bakteríuvaxtar. Því er mikilvægt að stýra rakastigi innandyra. Komi upp mygla þarf fyrst og fremst að fjarlægja orsökina, það er að bregðast við rakavandamálinu. Síðan þarf að lagfæra skemmdir og þrífa vel.
Hvenær á að leita til heilbrigðiseftirlitsins?
Ef leiguhúsnæði og annað íbúðarhúsnæði er ekki talið fullnægjandi m.t.t. hollustuhátta eða ef húsnæðið er álitið heilsuspillandi skal skoða leiðbeiningar Umhverfisstofnunar um inniloft, raka og myglu í híbýlum. Bent er á að yfirfara gátlista í lok leiðbeininga og getur fólk leitað til heilbrigðiseftirlitsins samkvæmt reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 ef þörf þykir.
Þegar kvörtun berst metur heilbrigðisfulltrúi hvort þörf sé á að skoða viðkomandi húsnæði. Ef þörf er á húsnæðisskoðun er tími ákveðinn fyrirfram og tveir heilbrigðisfulltrúar fara á staðinn. Um er að ræða sjón-, snerti- og lyktarskoðun en Heilbrigðiseftirlitið raskar ekki byggingarefnum eða tekur sýni. Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki heimild til að fara inn á einkaheimili fólks án leyfis húsráðanda. Bent er á að tekið er tímagjald vegna húsnæðisskoðana.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
- Borgartún 12, 105 Reykjavík
- Þjónustuver 411 1111