Garðyrkja
Að mörgu er að huga við garðyrkjustörf í Reykjavíkurborg. Reyta arfa, sinna trjágróðri og útivistarstígum, planta blómum og í þá örfáu daga sem rignir ekki nóg þarf að draga fram garðkönnurnar.
Verkbækistöðvar
Þrjár verkbækistöðvar sinna helstu garðyrkjustörfum borgarinnar svo sem að annast viðhald skrúðgarða, trjágróðurs og blómabeða á opnum svæðum.
Verkbækistöð III
Borgargarðar í Laugardal
Aðkoma frá Sunnuvegi, 104 Reykjavík
Borgarskógar
Til borgarskóga teljast Austurheiðar, heiðarnar austan byggðarinnar en auk þess Elliðaárdalur og Öskjuhlíð. Starfsmenn útmarka hafa umsjón með ræktun, grisjun og gerð útivistarstíga í útmörkinni og skógræktarsvæðum innan byggðarinnar.
Starfsmenn taka jafnframt þátt í verkefninu Lesið í skóginn sem meðal annars felst í samvinnu við skóla borgarinnar við að koma upp grenndarskógi.
- Heimilisfang: Hverfastöðin Jafnaseli
- Yfirverkstjóri: Óskar Baldursson
- Verkstjóri: Hallgrímur Jón Hallgrímsson
- Sími: 411 8640