Stafrænt ráð
Ár 2025, miðvikudaginn 25. júní, var haldinn 56. fundur stafræns ráðs. Fundurinn var fjarfundur og hófst kl. 14:06. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Alexandra Briem, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir, Birna Hafstein, Kristinn Jón Ólafsson, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Sandra Hlíf Ocares. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Inga Rós Gunnarsdóttir og Óskar J. Sandholt.
Eva Pandora Baldursdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram tilmæli um notkun gervigreindar hjá Reykjavíkurborg ásamt umsögn frá Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík, dags. 23. júní 2025, og umsögn frá Samtökum um mannvæna tækni, dags. júní 2025. ÞON24090056.
Samþykkt.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindisbréf, dags. 20. júní 2025, um stýrihóp um eflingu net- og gagnaöryggis. ÞON25060019.
Samþykkt.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:23
Alexandra Briem Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Birna Hafstein
Kristinn Jón Ólafsson Oktavía Hrund Jóns
Sandra Hlíf Ocares
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð stafræns ráðs frá 25. júní 2025