Innkauparáð
Ár 2019, fimmtudaginn 5. september var haldinn 464. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 12-14 og hófst kl. 13:00. Viðstödd voru Sabine Leskopf, Alexandra Briem og Björn Gíslason. Einnig sat fundinn Eyþóra K. Geirsdóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir og Gísli Óskarsson frá embætti borgarlögmanns og Jóhanna E. Hilmarsdóttir frá innkaupaskrifstofu sem einnig ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, dags. 3. september 2019, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjóts ehf. í útboði nr. 14592 Gufunes 1. áfangi. Gatnagerð og lagnir. R19080017.
Samþykkt.Hildur Freysdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar, dags. 26. ágúst 2019, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði Daga ehf. sem átti eina tilboðið sem barst í útboði / samningskaupum nr. 14569 Ræsting fyrir Bílastæðasjóð – 4 bílahús. R19050222.
Samþykkt.Vigdís Þóra Sigfúsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið klukkan 13:40
Sabine Leskopf Alexandra Briem