Félagsmiðstöðvar
Í Reykjavík starfa margar félagsmiðstöðvar. Þær eru ýmist starfræktar í húsnæði grunnskólanna eða utan þeirra. Opnunartími fylgir að mestu starfsári grunnskólanna. Yfir sumartímann er megináhersla lögð á hópastarf og opnunartími auglýstur sérstaklega.
Félagsmiðstöðvar í Reykjavík
Í félagsmiðstöðvunum er boðið upp á uppbyggilegt frístundastarf fyrir 10–16 ára börn og unglinga. Sérstök áhersla er lögð á að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings og að bjóða upp á fjölbreytileg viðfangsefni. Unnið er í klúbbum, sértæku hópastarfi, opnu starfi og tímabundnum verkefnum. Upplýsingar um opnunartíma félagsmiðstöðvanna eru á heimasíðum þeirra.
Sértækt frístundastarf
Í fjórum félagsmiðstöðvum er boðið upp á sértækt starf fyrir fötluð börn og unglinga; Öskju, Hellinum, Hofinu og Höllinni. Þar er opið eftir að skóladegi lýkur eða frá kl. 13:40–17:00 alla virka daga. Þá er opið í skólafríum frá kl. 08:00–17:00, en lokað er í vetrarfríum. Sótt er um sértækt frístundastarf á skráningarvefnum Völu.