Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks - starfaði til 2025
Aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks
Ár 2025, fimmtudaginn 30. janúar var 86. fundur aðgengis- og samráðsnefndar í málefnum fatlaðs fólks. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Tjarnarbúð og hófst kl. 10.04 Fundinn sátu:, Unnur Þöll Benediktsdóttir, Hallgrímur Eymundsson, Katarzyna Beata Kubiś, Björgvin Björgvinsson, Sigurbjörg H. Sigurgeirsdóttir og Tinna Helgadóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Þorkell Sigurlaugsson, Ingólfur Már Magnússon og Lilja Sveinsdóttir. Einnig sátu fundinn eftirfarandi embættismenn og starfsfólk: Anna Kristinsdóttir og Þórdís Linda Guðmundsdóttir með rafrænum hætti.
Valgerður Jónsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 23. janúar 2025, sbr. samþykkt borgarstjórnar, dags. 21. janúar 202, um að Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns taki sæti í aðgengis- og samráðsnefnd í stað Elísabetar Guðrúnar Jónsdóttur og að Tinna Helgadóttir taki sæti sem varafulltrúi í stað Oktavíu Hrundar Guðrúnar Jónsdóttur. Unnur Þöll Benediktsdóttir er kosin formaður nefndarinnar. MSS22060053.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dag. 17. desember 2024, um stýrihóp um stefnumótun fjölmenningarborgarinnar Reykjavík.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning skóla- og frístundasviðs á skimunarlistum fyrir ADHD og einhverfu í grunnskólum Reykjavíkur.
Alda Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning velferðarsviðs á Betri borg fyrir börn.
Hákon Sigursteinsson og Hulda Björk Finnsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum
lið.Fylgigögn
-
Fram fer kynning velferðarsviðs á stjórnskipulagi málaflokks fatlaðs fólks á velferðarsviði.
Aðalbjörg Traustadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
Fylgigögn
-
Kynningu umhverfis- og skipulagssviðs á hönnunarleiðbeiningum vegna leiksvæða, er frestað
Fundi slitið kl.11.32
Unnur Þöll Benediktsdóttir Björgvin Björgvinsson
Hallgrímur Eymundsson
Katarzyna Kubiś Ingólfur Már Magnússon
Lilja Sveinsdóttir Þorkell Sigurlaugsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð aðgengis- og samráðsnefndar 30. janúar 2025