Please note that this news article is more than two years old.
Nú er unnið er að endurskoðun upplýsingastefnu Reykjavíkurborgar en núverandi stefna er frá árinu 2000. Drög að nýrri stefnu eru í vinnslu hjá stýrihópi sem mun skila þeim til stjórnkerfis- og lýðræðisráðs fyrir 30. apríl nk. Stjórnkerfis- og lýðræðisráð mun svo leggja stefnuna fram til staðfestingar borgarráðs.
Í samræmi við auknar áherslur á samráð og íbúalýðræði hjá Reykjavíkurborg eru drög að stefnunni birt á vefnum og allir hvattir til að kynna sér þau og senda inn ábendingar og athugasemdir.
Opnuð hefur verið vefsíða þar sem finna má drögin að stefnunni eins og þau eru á hverjum tíma. Á síðunni er opið fyrir alla að senda inn hugmyndir og ábendingar sem teknar verða til skoðunar í vinnuhópnum.
Stjórnkerfis- og lýðræðisráð verður með opinn fund Menningarhúsi Grófinni, 1. hæð þann 30. mars nk. klukkan 17-19 og þar verður fjallað um drögin.
Stýrihópurinn tekur við ábendingunum og nýtir þær við vinnu sína.
Stýrihópinn skipa:
Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi, formaður;
Heiða Björg Hilmisdóttir varaborgarfulltrúi;
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi.
Starfsmaður hópsins er Ásta Guðrún Beck erindreki gagnsæis og samráðs.