Brúum bilið
Aðgerðaráætlunin Brúum bilið sem borgarstjórn samþykkti í nóvember 2018 miðar að því að fjölga leikskólaplássum.
Áætlunin nær til ársloka 2026 og felst fyrst og fremst í byggingu nýrra leikskóla en einnig í viðbyggingum við eldri leikskóla, nýjum leikskóladeildum og fjölgun barna í sjálfstætt starfandi leikskólum. Á þessari síðu má sjá þau verkefni sem tekin hefur verið ákvörðun um og eru í vinnslu. Nýjum verkefnum verður bætt við eftir því sem þau eru ákveðin.
Ný leikskólapláss væntanleg
- Ævintýraborg við Nauthólsveg
ágúst 2022 - 100 ný pláss - Múlaborg
ágúst 2022 - 60 ný pláss - Brákarborg Klöpp
september 2022 - 120 ný pláss - Ævintýraborg Vogabyggð
- október 2022 - 100 ný pláss
- Leikskóli við Safamýri
október 2023 - 125 ný pláss
Nýir leikskólar
Fjölmargir nýir leikskólar taka til starfa víðs vegar um borgina á næstu árum.
Stækkun leikskóla
Brúum bilið felur í sér stækkun á leikskólum með viðbyggingum og nýjum leikskóladeildum víðs vegar um borgina.
Nítján nýjar leikskóladeildir
Sjö nýjar leikskóladeildir og tólf sérútbúnar ungbarnadeildir munu taka til starfa fyrir árslok 2025.